top of page

Skilmálar

1. Almennar upplýsingar

  • Kraftflutningar ehf. kt. 460218-0630

  • Bifreiða- & tækjaflutningar ásamt almennri vegaaðstoð (dekkjaskipti, opnun bíla, start ofl.). Förum með bifreiðar í förgun ásamt því að gefa út skilavottorð. Förum hvert á land sem er. Flytjum bifreiðar og tæki allt að 12,5 tonn að þyngd.

  • Við bjóðum þjónustu alla virka daga frá kl. 08:00 til 17:00 og eftir klukkan 17 eftir samkomulagi. Viðskiptavinir geta pantað flutning á hvaða tíma sem er innan þessa tímabils, en hafið samband með a.m.k. 24 klukkustundum fyrirvara ef mögulegt er.

  • Við bjóðum einnig þjónustu yfir frídaga eftir nánari samkomulagi, og tökum við fyrirspurnir um útköll á hátíðardögum og utan vinnutíma, en þá getur komið viðbótarálag á þjónustuna.

 

2. Pöntun á flutning

 

3. Verðlagning og greiðslur

  • Verð er samkvæmt verðskrá innan höfuðborgarsvæðisins (kemur á heimasíðu innan skamms, verð í síma 551-2280). Ef flutningur er utan höfuðborgarsvæðis fer verð eftir kílómetragjaldi. Verð fer einnig eftir þyngd ökutækis. Aukagjald er eftir klukkan 17 á virkum dögum, um helgar og á hátíðardögum.

  • Ef pöntun er afbókuð eftir að flutningur hefur verið staðfestur og bílstjóri hefur lagt af stað, verður viðskiptavinur rukkaður um afbókunargjald. Þetta gjald nær yfir kostnað vegna undirbúnings og ferðakostnaðar sem þegar hefur átt sér stað. Við hvetjum viðskiptavini til að láta vita af breytingum eða afbókun sem allra fyrst til að lágmarka kostnað.

  • Hægt er að greiða með því að fá reikning sem er sendur í heimabanka, eða við tökum einnig á móti greiðslum með debet- og kreditkortum.

 

4. Afbókun og breytingar

  • Ef pöntun á bílaflutningi er afbókuð eftir að bílstjóri hefur lagt af stað í verkefni, hafa Kraftflutningar ehf. rétt á að senda út reikning fyrir útkallinu. Ef útkall fer fram eftir klukkan 17:00 eða um helgar, verður viðskiptavinur rukkaður um 20.000 krónur ef um er að ræða flutning innan höfuðborgarsvæðis, ef flutningur er utan höfuðborgarsvæðis legst auka gjald ofan á útkallsgjald sem reiknast út frá kílómetrum.

  • Við hvetjum viðskiptavini til að tilkynna allar breytingar eða afbókanir sem allra fyrst til að lágmarka óþarfa kostnað.

  • Afbókun á flutningi fer aðeins fram í gegnum síma í 551-2280

  

5. Vanskil og viðurlög

  • Ef reikningur er ekki greiddur fer krafan sjálfkrafa í innheimtu til Motus ehf.

  • Ef flutningur fer ekki fram vegna mistaka viðskiptavinar áskiljum við okkur rétt til þess að senda út reikning fyrir 20.000kr.

 

bottom of page